já góðann daginn og gleðilegt nýtt árrr og jólll og allt það..:D uhm ég er eila bara búin að vera á akureyri meira og minna seinustu 2 mánuði hjá örvari og náttla steinunni og já er eila bara flutt núna...hurru í gær fór ég og steinunn og örvar og elvar uppí fjall á snjóbretti það var samt lokað en það var allt í lagi sko fundum okkur góða brekku...og ég náttla fékk snjóbrettið hans sindra sem er sko vitlaust þannig ég flaug bara á hausinn og þau hlógu öll að mér...svo renndu strákarnir sér niður götuna og brettið hans elvars var nánast ónýtt og rann ekkert og þá ætlaði ég að vera geggjað sniðug og draga hann (ég og steinunn vorum sko í bílnum) og þá datt hann á ónýta hnéð og já hann varð eila bara smá reiður sko...en já nóg um það....ég er að fara til útlanda 12.feb:D og verð í 9 daga...er að fara til jersey..mamma og pabbi voru svo æðisleg að gefa mér ferðina til london í jólagjöf...það er ekki nema sko einn og hálfur mánuður þangað til ég fer og svo er ég alveg að verða 18 það eru ekki nema sko 26 dagar þangað til...þetta er eikka svo fljótt að líða marr...
ég hef samt eila ekkert að segja sko...steinunn var bara eikka að tuða um að ég ætti að fara að blogga því hún gerði það...en jamm ég læt þetta duga
boj....
04. janúar 2007 klukkan 19:31
Guðrún Ása Kolbeinsdóttir 3 athugasemdir
jæja vá það er geggjað langt síðan ég bloggaði..er eila ekkert að nenna þessu...allavega ekki í sumar sko..maður er bra eikka að vinna og ferðast eikka sko..en já ég er sko búin að eyða seinustu vikum með henni steinunni eða bara síðan um versló og það er bara búið að vera stuð sko..við vorum á króknum í viku og fórum svo á dalvík á fiskidaginn mikla og svo á mánudeginum eftir það fórum við suður að heimsækja hann sigga þór..hann á heima í bæ sem heitir Garður og það er geggjað freaky draugur sem er það.. þetta er þúst bara eiker gaur sem húkkar sér far og vill alltaf sitja afturí og svo þegar þú spyrð hann hvert hann vill fara þá er hann bra allt í einu horfinn..og ef þú tekur hann ekki uppí þá gerist eikkað fyrir bílinn þinn..mér fannst þetta ekkert sniðugt..þau sögðu mér þetta líka sko áður en ég var að fara að sofa.. og mér fannst það ekkert sniðugt sko...en jamm nóg um drauga...
Steinunn er að fara að flytja á sauðárkrók en það er samt sko bara kannski en ég ætla að láta hana flytja..ég veit hún vill það...hún hefur aldrei skemmt sér eins vel og þegar hún bjó hér allavega á meðan hún bjó á vistinni
skólinn er að byrja...bra þúst eftir 4 dagaég get ekki beðið sko...hlakka geggjað til þegar allt fólkið kemur og solls..er samt eila ekkert spennt yfir því að fara að læra sko..verð samt eila að standa mig í skólanum þessa önnina..allavega betur en hina..jájá það reddast allt saman
en jamm versló var æði sko...ég skrapp á ak á laugardeginum ásamt katrinu, gulla, tryggva og sunnu ósk og það var stuð sko....var samt eila bara með katínu og steinunni allan tímann...haha svo seinni nóttina sváfum við katrín báðar í bílnum og vöknuðum við það að ég steig á petalana og þjófavörnin fór í gang...það var samt eila ekkert sniðugt...bra svo ógeð mikið...og svo vorum við ennþá dáldið drukknar að við sprungum úr hlátri..
en jamm ég held þetta sé ágætt bara í bili sko...nenni ekki meira...
Guðrún - sem hlakkar til að byrja í skólanum..
24. ágúst 2006 klukkan 01:44
Guðrún Ása Kolbeinsdóttir 2 athugasemdir
jáf..blogg eða...ég held ég sé ekki að standa mig í þessu bloggi sko..en allavega þá er ég bara eila búin að vera vinna og eikka..svo skrapp ég á akureyri...það var stuð..steinunn hringdi bara í mig á þriðjudagskvöld geggjað einmanna..siggi farinn suður og karen á spáni og steinunn bara eikka að hanga..og ég náttla bara reddaði mér fari á akureyri og heimsótti gelluna.. það var stuð sko..nema hún var alltaf að vinna til kl.6 á daginn og þá var ég bara eikka að hangsa þangað til hún var búin..en já...
en sko hún karen kom heim á miðvikudaginn held ég..og vá hún er bra eila svört sko...ógeð´brún...við steinunn ætlum sko til spánar...pottó...og hún keypti sko FULLANN haldapoka af nammi...
og já besti vinur katrínar er tölvuspilið hennar...
og já í dag er sko 30.júní og hann Elvar Freyr á afmæli í dag..kallinn bara orðin tvítugur..þá er hægt að fara að látann versla fyrir sig og læti.. herðu svo á hann Einar frændi líka afmæli í dag...má ekki gleyma gamla fólkinu líka sko...en já til hamingju með afmælið...
og já í dag fór Berit heim til sín eftir að hafa verið hér í 10 mánuði...
vá ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa sko...
ég er að pæla að skella mér á landsmót um helgina...svona fist pabbi ætlar að splæsa og læti bara...þá þarf bara að kaupa eikka gott að drekka...það verður stuð..er reyndar amð vinna alveg í kvöld til 1 og síðan í fyrramálið en jájá það er allt í lagi...bara skella sér í nótt og eftir vinnu á laugardaginn...
en já ég held þetta sé bara orðið gott núna...er þetta nóg fyrir þig Erla mín..
og já ég er búin að setja inn myndir..endilega kíkjið..
Guðrún...sem langar til Spánar...
30. júní 2006 klukkan 18:47
Guðrún Ása Kolbeinsdóttir 4 athugasemdir
já ég held sko að það sé kominn tími á smá blogg...ég held ég sé ekkert að standa mig í þessu...en jamm allavega það er sko ekkert mikið búið að gerast...nema steinunn kom í heimsókn til mín um helgina og það var stuð sko...hún og karen frænka hennar komu sko og þær ætluðu skoa ð sofa í tjaldi og ég með þeim en þaðendaði ekkert þannig sko fyrri nottina sváfum við heima hjá gunni hahhaha og karen á gólfinu því ég og steinunn vorum víst dáldið plássfrekar...vorum samt í sko hjónarúmminu.. en já svo ætluðum við í skemmtisiglingu en nei það var bara beilað á okkur...hann elvar bara gleymdi því óvart að koma og sækja okkur þannig við komumst ekkert...en ekkert hægt að gera í því núna...
og svo var sjómannadagurinn á laugardaginn og það var bara brjálað stuð og svo var farið á sjómannaball með gamla settinu...það var ágætt sko.... við byrjuðum á því að fara heim til snorra og freyju og þar var eitthvað fólk í heimsókn líka og svo var náttla elvar og katrín þar líka.. sem betur fer því annars hefði ég ekkert farið þanna og verið bara með fullt af gömlu fólki eða þúst svona næstum því...og já það voru allir að drífa sig að drekka þar því það mátti náttla ekkert fara með áfengi inn...þannig maður var orðin ansi góður þegar maður var kominn niðreftir...og svo þegar maturinn var alveg að fara að byrja þá fór ég aðins út að tala í símann og gleymdi mér smá og svo allt í einu var pabbi mættur út og þá voru bara allir búnir að borða...var víst búin að tala í eikern hálftíma hahahah ég lifi fyrir að tala í síma...en jáog svo fór ég inn og var ein að borða... svo kom hún Fanney með fullt af fólki og bara næstum því allir frá hvammstanga þanna nema náttla jói hann var ekkert að standa sig í þessu...en jájá þetta endaði bara vel....fullt af æðibitum...hahahahahahahaha
svo átti erla afmæli a föstudaginn og gellan bara komin með bílpróf og bíl svona avensis...kemur á óvart..:P alveg eins og systkynin sín...og bara allt sko...til hamingju erla mín..
hahahahah svo fórum við katrín á hestbak í dag...vá það var sniiiilld....katrín orðin riðguð í þessu og hefur bara verið á eikerjum hestum sem nenna ekkert að hreyfa sig og fékk nú aðins að kinnast þessu í dag að vera á almennilegum hesti...hahaha...segjum bara að hún hafi bara næstum dottið að þrisvar og svo var henni mjög illt í puttunum...og svo í endann var hún bara farin að hnerra...gellan er nebbla með smá ofnæmi...en það var allt í læ...bjargaðist alveg sko...en hún náði líka alveg að vingast við hestinn svona þegar það leið á túrinn...þannig þetta endaði bara mjög vel sko.... ég var samt í vanda á leiðinni heim á mínum sko...ég réð ekkret við hann og hefði katrín ekki verið fyrir framan mig á leiðinni heim þá hefði ég örugglega verið fljótari sko...hahha réð ekkert við hann....
en já það er lítið meira sem ég hef að segja...nema ég verð örugglega með feita strengi á morgun eftir hestbakið...það er örugglega ár síðan ég fór seinast sko... en jamm boj boj....
Guðrún - hestakona..?
14. júní 2006 klukkan 02:14
Guðrún Ása Kolbeinsdóttir 7 athugasemdir
jæja ég held að það sé kominn tími á smá blogg...ég hef samt í rauninni ekkert að segja eeeen.... vá ég er búin að komast að því að það er ógeðslega dýrt að reka bíl...sérstaklega þegar maður keyrir svona geggjað mikið eins og ég..ég er búin að keyra bílinn minn 12.500 km síðan ég keypti hann og það er ekki langt síðan ég keypti hann.. en já svona er þetta víst þegar maður fær bílprófið..þá keyrir maður bara allan daginn..verður bara algjörlega háður bílnum..að minnsta kosti ég...ég held samt að ég sé að fara að selja bílinn....ég hef engann vegin efni á að vera að borga hann...sérstaklega því ég keyri svo mikið og þá eyði ég svoo miklum pening í bensín að ég get borgað svo lítið í honum á mánuði að ég verð endalaust að borga af honum..ég er að pæla í að reyna að sannfæra pabba minn í að leyfa mér að keyra gamla bílinn hans halldórs frænda míns sem hann gaf mér..pabbi er ekkert of sáttur með það hvað hann er keyrður mikið..hann er nebbla keyrður sko 600.000 sem er frekar mikið sko...
vá ég er farin að sakna svo margra svo mikið að það er ekki eðlilegt...ég á engann pening til að fara neitt í heimsókn þannig ég vona bara að einhverjir fari að koma...sérstaklega steinunn þá...svona fyst gellan er komin með bílprófið og allt..og er á einhverjum svakalegu kagga...eldgamlri toyotu camry...geðveikur bíll sko..
hahhaah um daginn fórum við aníta og erla smá rúnt þegar ég var búin að vinna...svo þega við skutluðum erlu heim ætluðum við að taka bara nokkra rúnta sem voru í svona 2 tíma óvart en já allavega þá fórum við og ætluðum að ná í eina svona litla stiku sem erla og aníta höfðu fundið þegar þær voru í labbitúr en við fundum hana ekki aftur...og þá ætlaði ég að vera geggjað sniðug og reyna að ná einni og allt í lagi svo þegar ég var að snúa henni eikka þá loksins losnaði hún og nei ég var með opna hurðina og það skutust milljón og tveir steinar inní bílllin og á anítu..og það var svooo fyndið...allt í einu fékk hún bara fullt af steinum á sig...en jamm litla stikan heitir Þrúður held ég..:P góð stika sko...
en jamm ég held að ég sé bara að gera þetta enn leiðinlegra blogg með því að fara að bulla eikka meira...
01. júní 2006 klukkan 19:23
Guðrún Ása Kolbeinsdóttir 2 athugasemdir
já við erum að tala um að það er að koma júní og það er allt á kafi eftir einn dag...það er sko skafl hérna sem er stærri en ég..það er bara búið að snjóa í allan dag...en já dagurinn í dag er ekki búin að vera neitt spennandi sko ég var vakin í morgun klukkan hálf 11..já það var hann elvar að biðja mig um að keyra sér því hann gat ekki farið á sínum bíl...já sénsinn að ég komist eikka á mínum bíl..hann kemst ekki neitt hann er svo lár að það má valla vera dós á veginum og þá rek ég hann niður..allavega næstum því...en já pabbi var svo elskulegur að keyra okkur fórum niðrí skip að sækja eikka dót og fórum svo til Katrínar og vöktum hana og svo bara fór elvar útá sjó og pabbi í brjáluðu veðri sem er ekki sniðugt því þeir verða þá bara í eikerja 2 sólarhringa við drangey eða eikka bara að bíða..væri ekki miklu nær að bíða bara heima í landi og vera hjá fjölskyldunni? en já og svo var bra ekkert að gera nema sofa og við katrín sváfum bara.. herðu svo vorum við bara að horfa á sjónvarpið og þá fór bara rafmagnið af en já sem sagt ekkert spennandi búiðað gerast sko.. maður liggur bara uppí rúmmi undir sæng að reynað hlýja sér... en já ég er farin að horfa á einhverja skemmtilega mynd eða eikka...sjáumst.. Guðrún Ása....
24. maí 2006 klukkan 01:24
Guðrún Ása Kolbeinsdóttir 7 athugasemdir
haaalló...ég ákvað að byrja með hjanna bloggsíðu..veit ekki alveg hvernig þetta á eftir að fara en jamm.... það er sko ekkert mikið búið að vera að ske sko hjá mér seinustu daga...fór reyndar á akureyriu í gærkvöldi og kom aftur heim í nótt og svo var ég á Hvammstanga á mánudaginn og það var bara geggjað gaman en ég ætla að skrifa seinna um þá road trip;) en jamm vildi bara segja eikka smá núna..blogga bara seinna...bæjó
17. maí 2006 klukkan 19:20
Guðrún Ása Kolbeinsdóttir Engin athugasemd